Fimmtudagur, 5. júlí 2007
Zoomtext á tveim skjám er ósk sem rættist
Rakst á ágætis grein sem ég fékk leyfi til þýða eftir Cathy Gettel, en greinin fjallar um Dual Monitor eiginleikan í Zoomtext 9.1.
Zoomtext á tveim skjám er ósk sem rættist !
Grein eftir Cathy Gettel.
Ég hef notað Zoomtext í tvö ár og líkt og mörg ykkar þá hefur mig alltaf langað til að geta átt kost á því að sjá meira af efninu sem ég er að vinna með. Ég vil hafa skjástækkunina nægjanlega mikla til að ég geti lesið, en samt sem áður vil ég hafa eins mikla yfirsýn yfir skjalið eins og kostur er. Ég vil fá hvoru tveggja ! Mér til mikillar ánægju þá hefur AI Squared núna gert mér þetta kleift. Með tilkomu Zoomtext 9.1, þá get ég tengt tvo skjái við tölvuna mína og séð tvisvar sinnum meira en ég gerði áður. Ég get sagt ykkur það að þetta hefur markað þáttaskil í mínu lífi. Ég vinn með gríðarlega stór Excel skjöl sem innihalda upplýsingar um sölutölur. En í þessum skjölum koma einnig fram í sér dálkum nöfn fyrirtækja, mánaðarleg sala, árleg sala og glósur. Þetta gerir það að verkum að ég hef hingað til þurft að hreyfa til skjámyndina talsvert mikið sökum skjástækkunarinnar. Í útgáfu 9.1 af Zoomtext get ég notað Dual Monitor eiginleikann sem kallaður er Span View og séð alla dálkana samtímis. Það skal tekið fram að ég nota x2 stækkun í Zoomtext.Ef þú hefur ekki kynnst Dual Monitor eiginleikanum þá ertu kannski að velta fyrir þér: Hvernig virkar það? Ímyndaðu þér tvo skjái hlið við hlið á skrifborðinu þínu sem vinna eins og einn skjár og þannig stækka skjámyndina um helming. Zoomtext hugbúnaðurinn sér um að skipta stækkuðu skjámyndinni milli beggja skjáanna sjálfkrafa. Það eina sem notandinn þarf að gera er að dást að útsýninu. Myndin hér fyrir neðan mun hjálpa þér að skilja betur hvað Dual Monitor Span View getur gert fyrir þig.
Á minni tölvu, þegar ég nota Dual Monitor Span View, þá skiptist stórnborð Zoomtext milli beggja skjáanna. Ef ég væri bara að nota vinstri skjáinn, þá þyrfti ég að færa músina til hægri til að geta séð hægri hluta stjórnborðsins. Með tveim skjám, þá get ég séð allt stjórnborðið í einu.Þegar tveir jafnstórir skjáir eru notaðir, báðir stilltir á sömu upplausn, þá skiptist myndin hnökralaust. Ég hef jafnan skjáina alveg upp við hvorn annan þannig að ekkert bil sé á milli þeirra. Eftir mjög skamman tíma þá hætti ég að taka eftir römmunum í kringum skjásvæðið þegar ég vann í þessu viðmóti og einbeitti mér bara að skjámyndinni.Stundum vinn ég teymisvinnu með samstarfsmönnum mínum, til dæmis við að skrifa fréttabréf og bæklinga fyrir okkar fyrirtæki. Þá sitjum við hlið við hlið fyrir framan tölvuna. Með einum flýtilykli þá get ég skipt um tegund af skjástækkun þannig að aðeins annar skjárinn sýni skjástækkun en hinn skjárinn sýni enga skjástækkun. Þessi stilling er kölluð 1x View. Þannig get ég haft þá skjástækkun sem ég þarfnast á meðan vinnufélagi minn er með slökkt á skjástækkuninni á þeim skjá sem hann horfir á.
Ég get líka valið Clone View stillinguna, sem er mjög gagnleg þegar verið er að kenna notendum á Zoomtext hugbúnaðinn. Með Clone View, þá sýna báðir skjáirnir sömu stækkuðu skjámyndina. Ég get því snúið öðrum skjánum að nemandanum og hinum skjánum að mér. Þetta gerir kennsluna mun auðveldari, því það er ekki mjög þægilegt þegar bæði kennari og nemandi þurfa báðir að sitja hlið við hlið til að geta nýtt sér skjástækkunina.
Til að geta nýtt þér Dual Monitor eiginleikan í Zoomtext, þá þarftu að vera með annað hvort Windows XP eða Windows Vista stýrikerfi á tölvunni þinni. Þú þarft einnig að vera með svokallað dual head skjákort í tölvunni, sem gerir þér kleift að tengja tvo skjái við skjákortið, eða tvö sjálfstæð skjákort í tölvunni. Til að tengja tvo skjái við ferðatölvu sem tengd er við vöggu, svokallaða docking station, þá þarf vaggan að geta tekið á móti tveimur skjáköplum. Það er alger draumur að geta sett ferðatölvuna í vögguna og kveikt á báðum skjáunum mínum á morgnanna, sérstaklega þegar haft er í huga hversu smáir skjáirnir á flestum ferðatölvum eru. Ef þú hefur áhuga á að auka skilvirkni og afköst í þinni tölvuvinnu þá ættirðu að prófa nýja Dual Monitor eiginleikan í Zoomtext. Í Span View stillingunni þá sérðu meira af stækkuðu skjámyndinni. Clone View og 1x View bjóða svo upp á fyrirtaks kennslu eða samstarfsumhverfi í tölvuvinnu, hvort sem viðkomandi er sjónskertur eður ei.
Zoomtext 9.1 hugbúnaðurinn er til sölu hjá Örtækni, www.ortaekni.is
Nánari upplýsingar um AI Squared fyrirtækið og Zoomtext 9.1 er að finna á heimasíðu fyrirtækisins, www.aisquared.com
Cathy Gettel annast samskipti við byrgja hjá AI Squared fyrirtækinu. Hún hefur mikla reynslu á þessu sérhæfða sviði tölvubúnaðar en er ekki sjónskert sjálf. Hún notar Zoomtext daglega í sinni vinnu.
Flokkur: Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 15:50 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.