Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Open Office, aðgengi og skjálesarar

Hef verið að kynna mér Open Office undanfarið. Einfaldlega vegna þess að fleiri og fleiri nýta sér nú þennan öfluga hugbúnaðarpakka. Open Office er frír hugbúnaður sem hægt er að niðurhala af heimasíðunni: www.openoffice.org

Open Office er valkostur við Microsoft Office hugbúnaðar pakkann, s.s. Word, Excel osf.

Ég hef svo sem notað Open Office í nokkurn tíma en aldrei eins markvisst eins og núna. Ástæðan er mjög einföld, mig vantaði danskan villupúka og ég var ekki tilbúinn til að greiða fyrir hann. Danski villupúkinn er innbyggður í Open Office, þess vegna var það afar praktískt fyrir mig. 

En hvernig er með aðgengileika fyrir skjálesara og skjástækkunarforrit ? Í mjög stuttu máli þá eru bretarnir ekkert komnir inn í þessar pælingar. Í upplýsingum frá Open Office kemur fram að útgáfur 6 og 7 af JAWS eigi að virka í stórum dráttum með Open Office og að flest allar útgáfur af Zoomtext eigi einnig að virka, en þá er átt við bæði skjástækkun og skjálestur í Zoomtext. Ekkert er talað um Dolphin hugbúnaðinn. Ég er núna staddur í Danmörku og verð hér næstu þrjú árin. Í næstu viku byrja ég að vinna hjá danskri Sjónstöð og hef fengið mjög skýr fyrirmæli um að Dolphin hugbúnaður sé ekki álitinn valkostur hér. Á meðan eru bæði Svíar og Norðmenn talsvert mikið að notfæra sér Dolphin vörur sem og náttúrulega Íslendingar. Svona er þetta nú breytilegt milli landa.


AI Squared kannar möguleika á "Scripting"

AI Squared fyrirtækið, sem framleiðir Zoomtext hugbúnaðinn, hefur nú hafið vinnu á nýjustu útgáfu Zoomtext fjölskyldunnar: Zoomtext Scripting Edition en þetta forrit á að koma út á næsta ári. Zoomtext Scripting Edition mun gera mönnum kleift að sérsníða hegðun Zoomtext eftir sínu höfði, til dæmis með því að útbúa sjálfvirkni í aðgerðum sem framkvæmdar eru reglulega. Sem stendur er ekki kominn nein nákvæm tímasetning á útgáfuna, þeir segja einfaldlega snemma á næsta ári. 

Scripting hefur verið mögulegt í JAWS hugbúnaðinum til margra ára og ýmsir nýttir sér þennan kost til að gera hugbúnað aðgengilegan, sem annars var ekki aðgengilegur skjálesurum. Fyrirtæki hafa verið stofnuð, til dæmis í Bandaríkjunum, sem sérhæfa sig í þess háttar tölvuvinnu.

Maður hlýtur að spyrja sig, fyrst að JAWS býður upp á Scripting og Zoomtext líka, þá er varla langt að bíða þess að Dolphin Computer Access sem framleiðir meðal annars HAL hugbúnaðinn, sé langt undan í þessari þróun ?  


Góðar fréttir

Á heimasíðu Örtækni, www.ortaekni.is , er að finna eftirfarandi frétt:

"Talgervillinn Ragga endurbættur

Samkvæmt upplýsingum sem við höfum frá framleiðendum Röggu, er búið að fínstilla talgervilinn. Þegar Ragga kom á markaðinn hljómaði hún ekki eins vel og menn áttu von á. Málið var að það vantaði smá fínstillingu á talgervilinn og á að vera búið að lagfæra það.

Við erum að bíða eftir að fá sýnishorn af lagfærðri Röggu og ætti það að koma fljótlega. Allir sem eru með Röggu fá uppfærslu án endurgjalds."

Þetta eru frábærar fréttir, hlakka til að fá  að prófa nýja eintakið af Röggu. 

 


Fedora Linux og Orca skjálesarinn

Rakst á mjög forvitnilega vefsíðu um daginn. En henni er haldið úti af blindum notanda á Írlandi. Hann keyrir Fedora Linux stýrikerfið og notfærir sér Orca skjálesarann. Á heimasíðunni sinni býður hann fólki upp á að niðurhala .mp3 skrám þar sem lýsir því hvernig hann ferðast um tölvuna, skjáborðið og svo framvegis með skjálesaranum sínum. Þessi maður heitir Darragh Ó Héiligh og hafði til margra ára notað JAWS skjálesarann áður en hann skipti í Orca og Linux umhverfið. Þetta er fróðleg síða og ýmislegt hægt að læra af henni, mæli með að þú kíkir á þetta. Slóðin á síðuna er: www.digitaldarragh.com 

Of mikið af vandamálum

Nú hef ég keyrt Internet Explorer 7 í talsverðan tíma og því miður hefur sú reynsla ekki verið eins góð og ég vonaði. Það eru alltaf ný vandamál að skjóta upp kollinum. Hafa ber í huga að ég er ekki að keyra IE 7 aðeins á einni vél. Ef það eru ekki lykilorð sem  IE 7 skyndilega gleymir þá er það Flash sem virkar ekki. Ég uppfæri Flash af Adobe síðunni og daginn eftir er það sama sagan, Flash virkar ekki. Ég hef keyrt IE 7 á XP og Vista vélum og ég get ekki með nokkru móti komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé skárri vafri en IE 6. Firefox er fljótari og miklu áreiðanlegri. Það getur vel verið að fullt fólki segi: "Ég  hefði nú getað sagt þér þetta... og svo  framvegis..." Málið er bara  að ekki allir skjálesarar eru farnir að styðja Firefox. JAWS styður hann og Window Eyes líka ef ég man rétt en ekki Dolphin vörurnar ennþá. Mig grunar nú samt að það sé stutt í að stuðningurinn komi þar. Í öllu falli, ég nota IE 7 einungis vegna  þess að Dolphin vörurnar styðja ekkert annað. Á öðrum vélum dytti mér ekki til hugar að nota neitt annað en Firefox. 

Aðgengilegar PDF skrár

Rakst á mjög góða  grein um hvernig skal búa  til aðgengilegar PDF skrár, þannig að þær  séu leshæfar  með skjálesara, hægt er að lesa  greinina á eftirfarandi  tengli en greinin er á PDF sniði: Lesa grein um PDF skráargerð Ég ætla svo líka að taka saman nokkur praktísk atriði sem vert er að hafa í huga þegar verið er að útbúa PDF skrár. Það  kemur  síðar. Ég vil vekja athygli á liðnum "Tenglar". Þar eru fleiri vefslóðir sem vísa á upplýsingar um hvernig skal lesa og vinna með aðgengilegar pdf skrár.

Supernova, útgáfa 8, að verða tilbúin á íslensku

Fyrir ekki löngu síðan kom á markað útgáfa 8 af Dolphin vörunum, Hal, Supernova, Lunar og fleirum. Útgáfa 8 býður upp á stuðning við Windows Vista en aðrar nýjungar er ekki að finna í þessari útgáfu frá því í útgáfu 7.03. Í vetur hyggjast Dolphin menn koma með fleiri nýjungar, en ekki er búið að tilkynna formlega hverjar þær verða ennþá. Ég hef verið að bíða eftir útgáfu 8 til að geta prófað hana almennilega á Windows Vista, en íslenska viðmótið hefur ekki verið tilbúið fyrr en nú. Rakst á það á Dolphin vefnum í kvöld að útgáfa 8 er nú niðurhalanleg til 30 daga prófunar, þannig að það má búast við því að þeir hjá Örtækni verði komnir með hana til sölu fljótlega. Ég er búinn að sækja mér eintak sem ég fer að skoða á næstu dögum, á meðan ég bíð þolinmóður eftir að fá eintak hjá Örtækni. Allavega svona tiltölulega þolinmóður. Datt í hug að skella hérna inn upplýsingum um þann vélbúnað sem mælt er með að Supernova 8.01 keyri á þegar unnið er á Windows Vista stýrikerfinu. En Dolpin segir svo á heimasíðu sinni: Vélbúnaðar kröfur þær sem fjallað er um hér að neðan skulu aðeins notaðar sem viðmið. Hin eiginlega virkni hugbúnaðarins á þeirri tölvu sem hann er settur upp á getur verið breytileg eftir því hvaða samsetning á vélbúnaði er á tölvunni sem og einnig hvaða annar hugbúnaður er settur upp á henni. En þeir mæla sum sé með eftirfarandi:

Allur vélbúnaður þarf að vera í samræmi við The Microsoft Hardware Compatibility List (HCL) fyrir Windows Vista. Lausalega þýtt myndi þetta útleggjast sem listi yfir þann vélbúnað sem að Microsoft samþykkir fyrir þessa tegund af stýrikerfi, en við erum að tala um Windows Vista. Þennan lista má nálgast á eftirfarandi vefslóð: http://winqual.microsoft.com/HCL

Fyrir Windows Vista stýrikerfi sem á að keyra Supernova 8 er mælt með:

Örgjörvi - Intel Core 2 Duo, 2.1Ghz eða Intel Pentium D 925 örgjörvi 3.0Ghz, Intel Centrino Duo Mobile 1.66 eða AMD Athlon 64 x2 Dual Core örgjörvi 3600+ eða sambærrilegur eða jafnvel stærri.

Minni - 1Gb eða meira.

Skjákort - AGP, PCI Express eða PCI kort með 256mb eða meira minni.

Hljóðkort - innbyggt eða sjálfstætt, skiptir ekki máli.

Harður diskur - 500mb af lausu plássi.


Símatími upplýsinga og tæknisviðs Sjónstöðvarinnar

UT svið Sjónstöðvar er nú farið að bjóða upp á símatíma. Símatímarnir eru alla þriðjudaga milli 18:00 og 21:00. Númerið sem hringt er í er: 496-0125. Hugmyndin með þessum símatímum er að gefa fólki tækifæri til að bera upp spurningar  um tæknimál.  Allir áhugasamir eru hvattir til að notfæra sér þennan möguleika.

Zoomtext á tveim skjám er ósk sem rættist

Rakst á ágætis grein sem ég fékk leyfi til þýða eftir Cathy Gettel, en greinin fjallar um Dual Monitor eiginleikan í Zoomtext 9.1. 

Zoomtext á tveim skjám er ósk sem rættist !

Grein eftir Cathy Gettel. 

Ég hef notað Zoomtext í tvö ár og líkt og mörg ykkar þá hefur mig alltaf langað til að geta átt kost á því að sjá meira af efninu sem ég er að vinna með. Ég vil hafa skjástækkunina nægjanlega mikla til að ég geti lesið, en samt sem áður vil ég hafa eins mikla yfirsýn yfir skjalið eins og kostur er. Ég vil fá hvoru tveggja ! Mér til mikillar ánægju þá hefur AI Squared núna gert mér þetta kleift. Með tilkomu Zoomtext 9.1, þá get ég tengt tvo skjái við tölvuna mína og séð tvisvar sinnum meira en ég gerði áður. Ég get sagt ykkur það að þetta hefur markað þáttaskil í mínu lífi. Ég vinn með gríðarlega stór Excel skjöl sem innihalda upplýsingar um sölutölur. En í þessum skjölum koma einnig fram í sér dálkum nöfn fyrirtækja, mánaðarleg sala, árleg sala og glósur. Þetta gerir það að verkum að ég hef hingað til þurft að hreyfa til skjámyndina talsvert mikið sökum skjástækkunarinnar. Í útgáfu 9.1 af Zoomtext get ég notað Dual Monitor eiginleikann sem kallaður er „Span View“ og séð alla dálkana samtímis. Það skal tekið fram að ég nota x2 stækkun í Zoomtext.

Ef þú hefur ekki kynnst „Dual Monitor“ eiginleikanum þá ertu kannski að velta fyrir þér: „Hvernig virkar það?“ Ímyndaðu þér tvo skjái hlið við hlið á skrifborðinu þínu sem vinna eins og einn skjár og þannig stækka skjámyndina um helming. Zoomtext hugbúnaðurinn sér um að skipta stækkuðu skjámyndinni milli beggja skjáanna sjálfkrafa. Það eina sem notandinn þarf að gera er að dást að útsýninu. Myndin hér fyrir neðan mun hjálpa þér að skilja betur hvað „Dual Monitor Span View“ getur gert fyrir þig.

Mynd: Dual Monitor eiginleikinn í Zoomtext - Span ViewÁ minni tölvu, þegar ég nota „Dual Monitor Span View“, þá skiptist stórnborð Zoomtext milli beggja skjáanna. Ef ég væri bara að nota vinstri skjáinn, þá þyrfti ég að færa músina til hægri til að geta séð hægri hluta stjórnborðsins. Með tveim skjám, þá get ég séð allt stjórnborðið í einu.Þegar tveir jafnstórir skjáir eru notaðir, báðir stilltir á sömu upplausn, þá skiptist myndin hnökralaust. Ég hef jafnan skjáina alveg upp við hvorn annan þannig að ekkert bil sé á milli þeirra. Eftir mjög skamman tíma þá hætti ég að taka eftir römmunum í kringum skjásvæðið þegar ég vann í þessu viðmóti og einbeitti mér bara að skjámyndinni.

Stundum vinn ég teymisvinnu með samstarfsmönnum mínum, til dæmis við að skrifa fréttabréf og bæklinga fyrir okkar fyrirtæki. Þá sitjum við hlið við hlið fyrir framan tölvuna. Með einum flýtilykli þá get ég skipt um tegund af skjástækkun þannig að aðeins annar skjárinn sýni skjástækkun en hinn skjárinn sýni enga skjástækkun. Þessi stilling er kölluð „1x View“. Þannig get ég haft þá skjástækkun sem ég þarfnast á meðan vinnufélagi minn er með slökkt á skjástækkuninni á þeim skjá sem hann horfir á.

Mynd: Dual Monitor eiginleikinn í Zoomtext - 1x ViewÉg get líka valið „Clone View“ stillinguna, sem er mjög gagnleg þegar verið er að kenna notendum á Zoomtext hugbúnaðinn. Með „Clone View“, þá sýna báðir skjáirnir sömu stækkuðu skjámyndina. Ég get því snúið öðrum skjánum að nemandanum og hinum skjánum að mér. Þetta gerir kennsluna mun auðveldari, því það er ekki mjög þægilegt þegar bæði kennari og nemandi þurfa báðir að sitja hlið við hlið til að geta nýtt sér skjástækkunina.

 

Til að geta nýtt þér „Dual Monitor“ eiginleikan í Zoomtext, þá þarftu að vera með annað hvort Windows XP eða Windows Vista stýrikerfi á tölvunni þinni. Þú þarft einnig að vera með svokallað „dual head“ skjákort í tölvunni, sem gerir þér kleift að tengja tvo skjái við skjákortið, eða tvö sjálfstæð skjákort í tölvunni. Til að tengja tvo skjái við ferðatölvu sem tengd er við vöggu, svokallaða „docking station“, þá þarf vaggan að geta tekið á móti tveimur skjáköplum. Það er alger draumur að geta sett ferðatölvuna í vögguna og kveikt á báðum skjáunum mínum á morgnanna, sérstaklega þegar haft er í huga hversu smáir skjáirnir á flestum ferðatölvum eru. Ef þú hefur áhuga á að auka skilvirkni og afköst í þinni tölvuvinnu þá ættirðu að prófa nýja „Dual Monitor“ eiginleikan í Zoomtext. Í „Span View“ stillingunni þá sérðu meira af stækkuðu skjámyndinni. „Clone View“ og „1x View“ bjóða svo upp á fyrirtaks kennslu eða samstarfsumhverfi í tölvuvinnu, hvort sem viðkomandi er sjónskertur eður ei.

Mynd: Dual Monitor eiginleikinn í Zoomtext - Clone View

Zoomtext 9.1 hugbúnaðurinn er til sölu hjá Örtækni, www.ortaekni.is   

Nánari upplýsingar um AI Squared fyrirtækið og Zoomtext 9.1 er að finna á heimasíðu fyrirtækisins, www.aisquared.com

Cathy Gettel annast samskipti við byrgja hjá AI Squared fyrirtækinu. Hún hefur mikla reynslu á þessu sérhæfða sviði tölvubúnaðar en er ekki sjónskert sjálf. Hún notar Zoomtext daglega í sinni vinnu.

 


Mono-Músin frá Bierley fyrirtækinu og BigReader

Mynd: Mono Músin frá BierleyÁ síðastliðnu ári kom sjóntækjafræðingur Sjónstöðvarinnar að máli við mig til að ræða lestæki sem stöðin hafði ekki prófað áður. Um var að ræða tæki sem lítur út eins og tölvumús og er tengt með SCART snúru við sjónvarp. Tækið heitir Mono-Mouse og er framleitt af Bierley fyrirtækinu í Englandi. Ian Bierley, stofnandi fyrirtækisins, fékk áhuga á þessari tegund vara þegar móðir hans greindist með gláku. En sökum þessa, var nauðsynlegt fyrir hana að notast við skjástækkun þegar hún las prentaðan texta. Ian komst að þeirri niðurstöðu að best væri að hafa tæki sem einfalt væri að nota, tækið þyrfti að vera eins ódýrt og kostur væri og það þyrfti að sjálfsögðu að geta stækkað hvað sem var. Við tók þróunarferli sem á endanum gat af sér Mono-Músina. Músin varð mjög fljótlega vinsæl í Englandi.

Mynd: Mono-Músin tengd við sjónvarpUm 70% af sjónskertum einstaklingum eru yfir 75 ára aldri í Englandi og þess vegna var nauðsynlegt að tækið væri ódýrt og einfalt í notkun. En ekki allir notendur hafa mikinn áhuga á að kafa djúpt í tölvumál, þeir vilja einfaldlega hafa tækifæri til að lesa þann texta sem vill án þess að þurfa að verja miklum tíma við að læra á tækjabúnaðinn. Þetta er akkúrat það sem músin býður upp á. Prentaður texti er settur á borð, músin er tengd við sjónvarpið og svo er hún lögð ofan á prentaða textann og myndin birtist stækkuð á sjónvarpsskjánum.  Þessi tegund af lestæki er að sjálfsögðu ekki með sömu möguleika eins og þau tæki sem eru með sjálfstæðan tölvuskjá (CCTV), Sjónstöðin hefur um árabil úthlutað þannig lestækjum. Í þeim er útprentaði textinn settur undir skjáinn í lestækinu og stækkaða myndin birtist þar. Þá er einnig hægt að velja um ýmsa litamöguleika, til dæmis gulur texti á svörtum grunni og fleira í þeim dúr. Slík lestæki eru mun dýrari og talsvert fyrirferðarmeiri, eins og gefur að skilja, og þess vegna ekki raunhæf lausn fyrir alla. En Sjónstöðin hefur, sökum skorts á fjármagni, ekki alltaf haft möguleika á að úthluta búnaði til allra sem óska eftir því. Búast má við að hlutfall sjónskertra einstaklinga hér á landi fari hækkandi á næstkomandi árum, meðal annars vegna þeirrar einföldu staðreyndar að fólk nærri hærri aldri nú en áður. Við þurfum því að hafa fleiri en eina lausn þegar rætt er um raftækjabúnað sem býður upp á skjástækkun.  

Mono-Músin er kærkomin viðbót við þessa flóru af tækjabúnaði. Í fyrstu tóku sjóntækjafræðingar í Englandi músinni fagnandi vegna þess hve hagkvæm hún var í innkaupum, en nú hefur viðhorfið breyst. Staðreyndin er sú að Mono-Músin býður upp á mjög skýra skjástækkun og það er einfaldlega bónus hversu hagkvæm hún er í samanburði við stóru CCTV lestækin.

Mynd: BigReaderBierley fyrirtækið hefur bætt fleiri vörutegundum við framleiðslulínu sína, sem dæmi má nefna í því sambandi BigReader. BigReader er í raun Mono-Músin sem búið er að tengja við sautján tommu skjá í stað sjónvarps. Hugmyndin var sú að geta boðið, sem dæmi, söfnum upp á hagkvæma leið til að þjónusta sína notendur sem þurfa að kljást við sjónskerðingu. BigReader er þá settur upp þar sem bæklingar og annað lesefni er í boði svo að allir þeir sem heimsækja safnið hafi jafnan kost á að kynna sér nánar hvað er þar í boði. En Mono-Músin er alltaf langvinsælasta varan hjá Bierley, sem þarf ekki að koma á óvart. Hægt er að kaupa Mono-Músina hjá Örtækni, www.ortaekni.is og nánari upplýsingar um Mono-Músina er hægt að nálgast á heimasíðu Bierley: www.bierley.com  Kveðja, tölvupúkinn.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband